Spor í Sandi, kristileg síða.

                                                            
Fræðsla um trú, ásamt ýmiskonar afþreyingarefni.
             Umsjónarmaður.
                                  Konráð Rúnar Friðfinnsson.


Líf mitt. 

Konni sjötugur.

Konni 19 júlí 2023. 

 

Hér er hann kominn fast að sjötugu og ekki lengur búsettur á Hellisgötu 15 heldur víða átt heima. 

Þó heimili hans í 16 ár hafi verið þar hefur hann aldrei inn í húsið komið eftir að fjölskyldan flutti.

Sárasjaldan kemur hann aftur þangað sem hann eitt sinn var og líkaði vel.  Af hverju?  Það veit hann ekki.

Heimahöfnin í dag er Hafnarfjörður og götuheiti annað og Skútahraun 2. 

Húsið byggði verktakafyrirtækið Hagvirki h f sem um tíma hafði mikla starfsemi. 




Smávegis samantekt um afmæli afmæilsibarnsins
hefur verið tekin saman og birtist hún hér
24 setpember 2023 klukkan 12. 00.
Kveðja.  Konráð Rúnar.

Konni hefur allmörg ár að baki
og allskonar af afla dregið að.
Þó aldrei væri í hans húsi maki
hringir síminn enn á mínum stað.

Afmælisvídeó Gert 23 september 2023.

September.
(frið-finnur yrkir) 


Við sönginn "Í skólanum í skólanum...."-
Í september í september er svell kalt mál í gangi.
Þá svangur etur heitan mat og stælir vöðva og styrkir sál.
Í október, nei september, sjást bindi sum á gangi.

Vesen er þetta.  Þarf maður að fara í spariföt og enn ekki komin jól?


7tugs afmælið Konna í Kóngsgerði Hafnarfirði - Skoðið stutta þætti í aðdraganda afmælisins.



Til baka

Hver sagði brandarann?   Konni um þrettán ára og í lopapeysu sem hann gat farið að klæja í.

Hjá mörgu fólki, kannski flestu, er til siðs að gera sér smávegis dagamun á eigin afmælisdegi. 

Samt er allur gangur á og sjálfur minnist ég ekki sérstakrar uppákoma á afmælisdegi mínum.  Ekki heldur sem barns,  tertuáts né vinum í afmælisboði, og því öllu.  Engin söknuður en slíkt ekki alla jafna venjan á mínu æskuheimili og er fyrirkomulag sem maður hefur enga skoðun á.  Svona bara var þetta.

 Stundum var manni boðið í afmæli æskuvinar.  Stundum ekki. 

Á eigin afmælisdegi gat vel gerst að manni væru færðar afmælisgjafir.  Minnist ég teiknimynda bókarinnar Tarsan Apabróðir frá fjölskyldumeðlimi.

Er ég varð fimmtugur árið 2003 fékk ég svolitla peningagjöf frá systkinum og keypti fyrir hana, allavega hluta peningagjafarinnar, Philips rakvél sem ég raka mig ennþá með.  Vélin hefur aldrei bilað neitt.  Allt gengur þetta að lokum úr sér.

Sjötugur verða nokkur kaflaskil og stendur til að vera með smá afmælishóf með mat og mögulegri uppákomum.  Ekkert slíkt hefur en verið ákveðið enn veislan haldin laugardaginn 23 september 2023 á Sporhömrum 3 í Reykjavík.  Í húsakynnum Smárakirkju sem þar er. 

Sem sagt að þá stendur til að gera litla sæta afmælisveisla með venjulegu fólki.  Eins og sumir myndu orða þetta.  Er enda venjulegt fólk besta fólkið.   

Verður maður sjötugur nema einu sinni?

Sumir eru alltaf tvítugir og sumt fólk alltaf börn.